já Þjóðhátíð var æðisleg! og það verður sko farið á næsta ári

Tek
það fram að ég var með hálsbólgu og kvef og beinverki alla versló
Við Hákon fórum á miðvikudeginum með Þóri vini hans til Eyja ,Þórir
var svo góður að fljúga með okkur þangað og tók það ekki nema 40
mínútur á vélinni hans í staðinn fyrir að veltast með sjóveiki í
herjólfi daginn eftir.Þegar við komum þá kom Kiddi (pabbi Jónu) og
tók á móti okkur og við tjölduðum í garðinum hjá honum í fínasta
veðri. Eftir að við vorum búin að tjalda þá röltum við Hákon niður
á Café María og fengum okkur að borða og sáum nánast engan í bænum
. Þegar við vöknuðum um morguninn þá var aftur kíkt á röltið og
beðið eftir að restin af mafíunni kæmi. Nonni og co komu með
dallinum um 3 leytið og pabbi og co komu um 11 leytið.Um 12 leytið
kíkti ég,Enok,Kristín,Hákon,Bryndís,Eva og Jón niðrí dal sem var by
the way að fjúka í burtu röltum svo á þetta húkkara ball og guð
minn góður meðal aldurinn þarna hefur verið svona 18 ára svo að við
Hákon ákváðum að fara með bekkjabíl heim útaf roki og rigningu og
litlu krökkum

svo komum við í bekkjabílinn og förum heilan hring
og skiljum ekkert afhverju hann fór ekki þar sem við bjuggum...og
þá drullar gaurinn útúr sér EFTIR HEILAN HRING að þeir fari bara
stundum þarna. Ég spurði hvort hann ætlaðist virkilega til þess að
ég myndi labba heim til mín eftir heilan hring í sight seeing um
eyjuna ..orðin frekar pirruð og þá sagði hann að hann myndi fara
hjá 11-11 fyrir mig

frk frekja

takk fyrir pent. Svo þegar
komið var heim þá var farið að sofa.Dagurinn eftir fór í róleg heit
og rólega drykkju og fórum svo niðrí dal um 9 að horfá einhverja
dagskrá. Bestu búninga verðlauna afhendinguna og svona... og fullt
af fleiru.. svo var horft á brennuna og hún stóð fyrir sínu og
tjúttað eitthvað.. fór nú reyndar heim um 2 þar sem Hákon þurfti
bókstaflega að halda mér uppi sökum mikillar *hóst* drykkju... Við
erum að tala um að Jóna og Unnur náðu okkur því ég neitaði að labba
lengra því ég nennti því ekki...

daginn eftir þegar ég
vaknaði var þessi æðislega þynnka komin og FRÁBÆRT VEÐUR dagurinn
tekinn rólega og svo aftur niðrí dal um kvöldið að tjútta við
rottweiler og í svörtum fötum og á móti sól.. og skemmtum við
mafían okkur æðislega ! frábært að sjá Pabba,jónu,Nonna og Unni að
dansa priceless haha.. svo þegar vaknað var daginn eftir þá var
bara sama sagan tjillað og farið svo á kvöldvökuna! hún var
æðisleg.Hefði samt líka viljað hafa Hildi og Hjördísi

hringdi í þær í brekkunni og fór næstum að gráta..

en þær lofa
að koma á næsta ári. Svo var bara rokkað og rólað í
brekkunni,brekkan hjá klósettunum var frekar mikið notuð af
fjölskyldunni þetta kvöld


er ennþá með gras í
ullarpeysunni minni en anyways Þakka öllum sem voru með mér fyrir
frábæra helgi

lots of love til allra